Fuglahundadeild mynd 2
Leita á vefsíðu

Póstlisti




Á döfinni

Meira...


Heimsóknir: 8004683

Fréttir


Ellaprófið 8-9 mars

25.2.2025
Stækka mynd
Opnað hefur verið fyrir skráningu í Ellaprófið

Fuglahundadeild heldur fyrsta próf ársins, Ellaprófið helgina 8. – 9. Mars. Prófið er nefnt eftir Erlendi Jónssyni fuglahundadómara.
Prófað verður í unghundaflokki og opnum flokki báða dagana.

Prófið mun fara fram í nágrenni höfuðborgasvæðisins. Upplýsingar um staðsetningu prófsetningar kemur síðar. Styttan „Náttúrubarnið“ verður veitt besta hundi í opnum flokki yfir helgina.


Dómari: Kjartan Lindbøl (norskur en búsettur á Íslandi). Ef skráning er góð mun Einar Kaldi einnig dæma.

Fulltrúi HRFÍ: Einar Kaldi Örn Rafnsson

Prófstjóri: Arna Ólafsdóttir (8671740)

Skráning í prófið:

Á skrifstofu HRFÍ eða símleiðis í 588 5255 þar sem greitt er með því að gefa upp kortanúmer. Einnig er hægt að millifæra á HRFÍ á reikning 515-26-707729, Kennitala 680481-0249 og setja nafn hunds og prófnúmer 502501 í skýringu á færslunni ásamt því að senda afrit greiðslu á hrfi@hrfi.is og fuglahundadeildfhd@gmail.com

Veiðipróf 1 dagur - 8.000 kr.

Veiðipróf 2ja daga - 11.900 kr.

Við skráningu þurfa eftrirfarandi upplýsingar að koma fram:

• Nafn eiganda
• Nafn hunds
• Ættbókarnúmer
• Nafn leiðanda
• Hvaða flokk er skráð í (UF/OF)
• Hvaða dag/a á að taka þátt
• Prófnúmer 502501

Til ykkar sem eruð að æfa á svæðunum í kring þá væri vel þegið ef þið gætuð komið ábendingum um álitlegt prófsvæði á prófstjóra (Örnu 8671740). Eins má hafa samband við prófstjóra með spurningar varðandi skráningu/þátttöku.

Vinsamlegast athugið að síðasti skráningardagur er til miðnættis sunnudaginn 2.mars.