Stjórn FHD vill vekja athygli á því að skráningarfrestur í Kaldaprófið rennur út á miðnætti á morgun,
miðvikudaginn 26. apríl.
Skráning í prófið fer fram á skrifstofu HRFÍ á opnunartíma, sem er alla virka daga frá kl. 10-15. Einnig er hægt að millifæra á reikning félagsins en senda skal jafnframt tölvupóst með upplýsingum um skráningu ásamt kvittun fyrir greiðslu á hrfi@hrfi.is.
Sími skrifstofu er 588-5255
Reikningsupplýsingar HRFÍ eru eftirfarandi:
Rknr: 515-26-707729
Kt: 680481-0249
Þátttökugjald fyrir 1 dag er 5000.- 2 daga er 7.500.- 3 daga er 10.000.-
Tiltaka verður prófnúmer sem er #501704, ættbókarnúmer hunds, nafn leiðanda, í hvaða flokk/a á að skrá og hvaða dag/a. Greiða verður um leið og skráning fer fram til að skráning sé gild.
Nánari upplýsingar um prófið má nálgast
hér.