Þorrablót FHD 2025, verður haldið 15.2. takið daginn frá.
Þorrablót FHD laugardaginn 15. febrúar verður haldið heima hjá Hauki og Kristínu, að Bjarmalandi 6, 108 Reykjavík. Boðið hefst kl. 19:00. Hóflegt verð kr. 6300.- á mann og kemur fólk með sína drykki.
Vinsamlegast greiðið inn á reikning FHD og skrifa nafn/nöfn þeirra sem greitt er fyrir. Reikningsnúmerið er 536-04-761745 og kt: 670309-0290
Síðasti skráningardagur er fimmtdagurinn 13. febrúar kl 12/ hádegi.
Sendið staðfestingarpóst á fuglahundadeildfhd@gmail.com
Allir hundaeigendur, áhugafólk um tegundarhóp 7 er hjartanlega velkomið.
Góð stemning hefur verið á blótum undanfarin ár og verður engin undantekning á því. Það er skeggrætt um hunda, menn og málefni, mögulega prófadagskrá 2025, gamla dóma, sýningar og allt hitt. Eigum saman góða og skemmtilega kvöldstund í byrjun starfsárs og komum okkur í gírinn, maður er manns gaman.
Á blótinu eru afhent verðlaun fyrir stigahæstu hunda ársins 2024 á sýningum, sæki- & heiðaprófum.
Kveðja Fuglahundadeild