Fuglahundadeild mynd 15
Leita á vefsíðu

Póstlisti




Á döfinni

Meira...


Heimsóknir: 7633137

Fréttir


Korthals griffon hvolpar fæddir 21.júní

14.8.2024
Stækka mynd
Korthals griffon hvolpar fæddir 21.júní. Korthals griffon verða um 22-32 kg og eru með stríhærðan feld, þeir eru reittir og best er að reita þá 2 á ári. Þetta eru eðalhundar í skotveiðina, sækja bæði og benda, hafa gaman af allri útivist, vinnu og hreyfingu. Þeir eru frábærir fjölskylduhundar, ljúfir og góðir og sé þeim sinnt með temmilegri hreyfingu þá fer mjög lítið fyrir þeim innandyra.

Foreldrarnir Rex og Dóra eru bæði innflutt frá Bretlandi. Dóra er stór og öflug tík sem hefur fengið góða dóma í sýningarhringnum.

Rex hefur einnig fengið flotta dóma á sýningum HRFÍ. Rex hefur tekið þátt í fjölda sækiprófa með mjög góðum árangri. Hann hefur að auki tekið þátt í alls 8 heiðarprófum fyrir meginlandshunda og hlotið einkunn í þeim öllum! Hann fékk tilnefningu: Stigahæsti hundur í Heiðarprófum Meginlandshunda fyrir árið 2023!
 
Rex var fyrsti hundur Íslands til að þreyta ákveðið sækipróf af erfiðleikastigi sem aldrei hefur verið sett upp í prófi hérlendis.
 
Lýsing fengin frá Fuglahundadeild HRFÍ:
Þetta var sögulegur dagur því í fyrsta skipti hèrlendis var skráður hundur í Elítuflokk sem þurfti að leysa þrautir eftir erfiðleikastuðli 3 skv meginlandsreglum (þyngsta stigið).
-Í fyrsta skipti var lagður ferningur (50x50m ferningslaga svæði með fjórum mismunandi bráðum á og þar af eitt rándýr (minkur), leiðandi stendur à ákveðnum stað á meðan hundur sækir innan fernings.
-Vatnavinnan fór þannig fram að hundur var sendur í blinda 50m sókn í vatn (farið var með fugl út á bát og hann skilinn eftir í vatninu, hundur sá ekki kast og ekki var skotið) þegar hundur er á leið í land með fyrsta fugl er skotið og öðrum fugli kastað til hliðar við hundinn en hundur þarf að klára fyrstu sóknina áður en lagt er af stað í seinni sóknina.
-Sporið var 300m langt og bráðin þarf að vera 3,5-7kg.
Watereaton Engel/Rex leysti þetta allt saman af stakri snilld og skilaði risastórri grágæs ca 4,5Kg úr þessu 300m langa spori, gæsin var einnig ein af 4 bráðum í ferningnum.

Hvolparnir afhentast frá 16. ágúst ættbókarfærðir hjá HRFÍ, heilsufarsskoðaðir (bólusettir, örmerktir, ormahreinsaðir) og þeim fylgir flottur hvolpapakki frá Bendi.

Áhugasömum er bent á að hafa samband hér í skilaboðum gegnum Facebook á síðunni: Iceglow - Korthals griffon með helstu upplýsingum um hagi eða í síma 844-4105/ Katla eða 895-5457/Gunnar