Fuglahundadeild mynd 1
Leita á vefsíðu

Póstlisti




Á döfinni

Meira...


Heimsóknir: 7195446

Fréttir


Þökkum fyrir veglegar gjafir í Ella-pófið

21.3.2024
Stækka mynd
Samstarfs og styrktaraðilar Fuglahundardeildar fyrir árið 2024 eru Vetplus, Dýrafóður og Platinum. Við hlökkum til að vinna með þeim og þökkum fyrir veglega vinninga í Ella-prófinu.


VETPLUS

Aktivate er nýjasta viðbótin í vöruúrvalið okkar frá VetPlus.

Aktivate er ætlað til stuðnings fyrir starfssemi og heilbrigði heilans hjá eldri hundum og köttum. Allt að 75% eldri hunda sýna eitt eða fleiri einkenni atferlisbreytinga sem samræmast hnignun á vitsmunalegri starfssemi. Ástæður fyrir þessari hningnun er yfirleitt rýrnun á heilavef sem gersist m.a. vegna oxunarálags, skerðingar á blóðflæði til heilans, amyloid útfellinga eins og sést hjá fólki sem hefur verið greint með Alzheimer sjúkdóminn og aðrar ósértækar breytingar. Þetta er ólæknandi hrörnunarástand og felst meðhöndlun í að reyna að viðhalda lífsgæðum dýranna og til þess þarf að nota fjölþætta nálgun.

Aktivate inniheldur einstaka blöndu af andoxunarefnum og öðrum efnum sem styðja við heilann, styður við taugafrumur, hjálpar við bólgur, styður við heilbrigði hvatbera, andoxunarefna viðbót og dregur úr amyloid útfellingum.

Aktivate nýtur mikilla vinsælda í Evrópu, m.a í Belgíu, þar sem farið að nota það í auknu mæli hjá agility- og sýningarhundum á öllum aldri þar sem margir hundaeigendur vilja meina að eftir inntöku á Aktivate í 3-8 vikur séu hundarnir einbeittari og vinni betur.



DÝRAFÓÐUR







Eins og á fínasta veitingastað
Frá sjónarhóli dýranna er fóðrið algjör veisla, sem sameinar hreina náttúrulega
eiginleika og það besta sem vísindin hafa að bjóða.

Bæði hráfæðið og þurrmaturinn frá Belcando er framleitt í Þýskalandi úr
sérvöldu fyrsta flokks hráefni og þróað af næringarfræðingum. Hátt hlutfall dýrapróteins og vandlega valin bætiefni efla hreysti og vellíðan sem er
forsendan fyrir góðu lífi.

Ferfætti fjölskyldumeðlimurinn þinn á allt gott skilið.
Bjóddu honum upp á náttúrulega veislu á hverjum degi.


PLATINUM





PLATINUM þurrfóður

Samkvæmt mottói okkar „Gerðu hundinn þinn hamingjusaman – með PLATINUM“, treystum við á tegunda-viðeigandi náttúrulega næringu. Sem leiðandi framleiðandi af hágæða hundamat notum við þess vegna aðeins bestu hráefni.

Náttúrulega holla PLATINUM hundaþurrfóðrið er hveiti og glútein-frítt og inniheldur einungis hágæða hráefni sem einnig eru hæf til manneldis. Það er einnig laust við aukaefni, bragðefni, litarefni og bragðbæta.

En umfram allt er hundaþurrfóðrið framleitt úr minnst 70% fersku kjöti án viðbætts vatns – hægeldað í eigin safa – hentar tegundum af öllum gerðum og aldri.