Skráningarfrestur á veiðipróf Írsk setter deildar er að renna út. Prófið sjálft verður haldið helgina 28.-30. apríl. Prófað verður í unghunda og opnun flokki laugardag og sunnudag en keppt verður í keppnisflokki á mánudeginum. Dómarar verða þeir Jan-Olov Daniels, Pétur Alan Guðmundsson og Egill Bergmann. Prófstjóri er Margrét Kjartansdóttir.
Hægt verður að skrá í prófin á skrifstofu HRFÍ til föstudagsins 19. apríl en á netinu til sunnudagsins 22. apríl.
Eins og og áður er ekki hægt að skrá í gegnum heimasíðu HRFI og verður því að millifæra á reikning og senda kvittun í tölvupósti. Kennitala HRFÍ er 680481-0249, banki 0515-26-707729. Prófið er nr. 501206.
Sendið skal kvittun á hrfi@hrfi.is Munið að senda allar upplýsingar um hundinn og hver verður leiðandi.