Gunnar Gundersen er einn virkasti fuglahundamaður Noregs, hann er búinn að eiga Vorsteh frá 1970 og varð fuglahundadómari 1986. Hann hefur réttindi til að dæma eftirleitarpróf, fuglahundapróf og samsett próf(sækja/skila próf). Hann hefur þjálfað hunda í hundaskóla í Noregi og kom meðal annars til Íslands 2014 og hélt hér, ásamt konu sinni Bjørg Elisabet Flaata (sem einnig er fuglahundaþjálfari) vel sótt námskeið um sækivinnu og spor. Hann er mjög aktívur veiðimaður og dómari og tekur sjálfur þátt í veiðiprófum. Gunnar hefur verið formaður NPK og NVK.
Með skráningunni þarf að fylgja greiðsla í prófið.
Bankanúmer er : 515 26 707729 og kennitala : 680481-0249, vinsamlega munið að senda tilkynningu um greiðslu á hrfi@hrfi.is og fuglahundadeildfhd@gmail.com .
Einnig er hægt að greiða með kreditkorti en þá þarf að gefa upp kortanúmer, gildistíma og 3 stafa öryggisnúmer, þessar upplýsingar þurfa að koma með skráningunni.
Í skráningu þarf að tiltaka : prófnúmer (501606) ættbókarnúmer hunds, nafn leiðanda og í hvaða flokk á að skrá.
Þátttökugjald er
1 dagur : 4800
2 dagar : 7400