Framlengdur skráningafrestur í Kaldaprófið

Stækka mynd

Glæsilegu prófi deildar írska setans er lokið og við óskum öllum einkunna- og sætishöfum til hamingju !  Framlengdur skráningafrestur í Kaldapróf FHD rennur út á miðnætti í kvöld 22.apríl, við hvetjum alla til að skrá og taka þátt í spennandi prófi með flottum dómurum norðan heiða.  Prófstjórar fyrir norðan hafa fundið ný veiðiprófsvæði, m.a. á Fljótsheiðinni og í Bárðardal.  Þátttökulisti í prófið verður birt um leið og búið verður að vinna úr öllum skráningum.


Sjáumst öll fyrir norðan !