Framlengdur skráningarfrestur í Kaldapróf FHD

Stækka mynd

Þar sem ansi þétt er milli prófa hjá okkur með hunda í tegundahópi 7 og líklegt að hundar annað hvort nái árangri eða færist milli flokka þá hafa prófstjórar ákveðið að framlengja skráningarfresti í Kaldaprófið til miðnættis á sunnudag 22. apríl en þá verður prófi deildar Írska setans lokið.  Við hlökkum mikið til Kaldaprófsins enda verður það að vanda skemmtilegur viðburður, veiðipróf á nýjum lendum og flottir dómarar.