Skráningu í prófið lýkur á
miðnætti 28. febrúar. Prófið verður haldið i nágrenni Reykjavíkur. Við hvetjum alla til að skrá og taka þátt og heiðra þannig minningu Erlends Jónssonar fuglahundadómara. Royal Canin á Ísland styrkir þetta próf sem og aðra starfsemi deildarinnar.
Besti hundur í opnum flokki hlýtur til varðveislu í eitt ár Ellastyttuna "Náttúrubarnið" sem gefin var af vinum Erlends heitins Jónssonar fuglahundadómara sem lést fyrir aldur fram.
Skráning í prófið fer fram á skrifstofu HRFÍ að Síðumúla 15 (sími : 588 5255), prófnúmerið er : 501802 við skráningu þarf að taka fram prófnúmer og í hvaða flokk hundur er skráður.