Athugið það eru trippi að æfa í hinum hólfum reiðhallarinnar. Vinsamlega gangið hljóðlega um og haldið hundunum rólegum :)
Fuglahundadeild býður upp á sýningarþjálfun öll þriðjudagskvöld fram að Winter Wonderland sýningunni helgina 24.-26. nóvember. Sýningarþjálfunin verður í Samskipahöllinni, reiðhöll hestamannafélagsins Spretts kl. 20-21. Hólf þrjú vesturendi.
Við byrjum þriðjudaginn, 7. nóvember. Seinni tvö skiptin verða 14. og 21 nóvember.
Allir hjartanlega velkomnir, skiptið kostar 500 kr. Borð verður því miður ekki á staðnum.
Munum eftir sýningartaum, kúkapoka, góða skapinu og nammi-verðlaunum fyrir hundinn.