Ársfundur Fuglahundadeildar HRFÍ verður haldinn í húsnæði Hundaræktarfélags Íslands að Síðumúla 15 kl. 13:00 sunnudaginn 26. febrúar 2017. Að þessu sinni eru fjögur sæti laus þar sem Þorsteinn Friðriksson, sem kosinn var á ársfundi 2016 hefur ákveðið að segja sæti sínu lausu og Albert Steingrímsson, Kristín Jónasdóttir og Unnur A Unnsteinsdóttir hafa öll setið í þau tvö ár sem þau voru kosin til.
Eftir fundinn verður Haukur Reynisson með kynningu á meginlandshundaprófinu.
Vonumst til að sjá sem flesta
Stjórn FHD
Athugið breytta staðsetningu frá upprunanlegri auglýsingu í Litla Sámi !