Ársfundur Fuglahundadeildar
Ársfundur Fuglahundadeildar verður haldinn í húsnæði HRFÍ að Síðumúla 15, 30. apríl kl. 19:00. Dagskrá: Ársskýrsla Ársreikningur Kosning tengiliða, Weimaraner, Vizslu, Pointer, Gordon Setter og Breton. Kosning stjórnar (tvö laus sæti í stjórn) Önnur mál
Vonumst til að sjá sem flesta.
Kosningarrétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni.
|