Fuglahundadeild mynd 4
Leita á vefsíðu

Póstlisti




Á döfinni

Meira...


Heimsóknir: 7149351

Fréttir


Gisting í Kaldaprófi FHD

22.3.2018
Stækka mynd
Að þessu sinni hefur deildin ekki tekið frá húsnæði fyrir þátttakendur í Kaldaprófinu, einungis fyrir starfsmenn prófsins. Þó er búið að tryggja gistingu í stóra húsinu og eru einhver herbergi laus þar gegn vægu gjaldi.  Enn eru síðan einhver hús laus og við hvetjum þá sem hafa hug á að taka þátt í prófinu og vilja tryggja sér gistingu að hafa samband sem fyrst við prófstjóra prófsins Unni Unnsteinsdóttur, ef áhugi er á herbergi í stóra húsinu eða Marinó staðarhaldara á Ytri-Vík fyrir hús.  Prófið verður haldið dagana 27., 28. og 29. apríl og dómararnir verða þrír, tveir frá Noregi þeir : Ronny Hartviksen og Andreas Björn og einn íslenskur dómari.  Áformað er að prófa í öllum flokkum alla þrjá dagana ef skráning næst.  Frekari upplýsingar um dómarana og hvenær verður opnað fyrir skráningu koma fljótlega.