Fuglahundadeild mynd 9
Leita á vefsíðu

Póstlisti




Á döfinni

Meira...


Heimsóknir: 7102287

Fréttir


Ársfundur FHD verður 26. febrúar !

17.2.2017
Stækka mynd

Ársfundur Fuglahundadeildar HRFÍ verður haldinn í húsnæði Hundaræktarfélags Íslands að Síðumúla 15 kl. 13:00 sunnudaginn 26. febrúar 2017. Að þessu sinni eru fjögur sæti laus þar sem Þorsteinn Friðriksson, sem kosinn var á ársfundi 2016 hefur ákveðið að segja sæti sínu lausu og Albert Steingrímsson, Kristín Jónasdóttir og Unnur A Unnsteinsdóttir hafa öll setið í þau tvö ár sem þau voru kosin til. 

Dagskrá er eftirfarandi : 
1. Setning ársfundar
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
3. Ársskýrsla FHD kynnt 
4. Ársreikningar FHD kynntir
5. Kosning til stjórnar
6. Önnur mál. 

Eftir fundinn verður Haukur Reynisson með kynningu á meginlandshundaprófinu.

Vonumst til að sjá sem flesta
Stjórn FHD

Athugið breytta staðsetningu frá upprunanlegri auglýsingu í Litla Sámi !