Fuglahundadeild mynd 9
Leita á vefsíðu

Póstlisti




Á döfinni

Meira...


Heimsóknir: 7141554

Fréttir


Fréttir frá FHD

12.12.2016
Stækka mynd
Stjórn FHD hefur lagt veglega dagskrá næsta árs fyrir stjórn HRFÍ og það er von okkar að hún verði samþykkt og að við getum kynnt hana snemma á næsta ári.

Verið er að reikna út stigahæstu hunda ársins sem er að líða, áformað er að listarnir komi hér inn um helgina og síðan verða hundarnir heiðraðir í byrjun næsta árs.  

Opnu hús deildarinnar munu hefja göngu sína eftir áramót, þar sem dagskrá verður fjölbreytt og heitt á könnunni að venju.  

Tvær nýjar hundategundir hafa bæst við flóru deildarinnar en það eru Pudelpointer og Bracco Italiano, ein tegund til er í einangrun eða Korthals Griffon og verður gaman að sjá þessar þrjár nýju tegundir taka þátt í störfum deildarinnar.