Fuglahundadeild mynd 10
Leita á vefsíðu

Póstlisti




Á döfinni

Meira...


Heimsóknir: 7146574

Fréttir


Dómarakynning Frank-Gunnar Bjørn

24.8.2016
Stækka mynd
Frank-Gunnar og Junkerens Irgo

Frank-Gunnar Bjørn sem dæmir í Royal Canin veiðiprófi FHD á Auðkúluheiði er 47 ára og kemur frá Tromsø, giftur Torill Fossheim og eiga þau þrjú börn frá 11-18 ára.  Hann hefur veitt svo langt sem hann man og hefur verið með fuglahunda síðan 1990, að mestu leiti verið með gordon seta.

Fuglahundadómari varð Frank- Gunnar 2013. Hann á í dag átta ára gamlan ES Lundefjellets Metso, 5 ára gordon setann Junkerens Irgo og þann yngsta gordon setann Varangerviddas Ailo sem er aðeins 6 mánaða.

Það er gaman að geta þess að Frank-Gunnar Bjørn er bróðir Andreas Bjørns sem dæmdi hér nýlega og eru þeir bræður nú saman við veiðar á tiur (þiður) í Svíþjóð