Fuglahundadeild mynd 8
Leita á vefsíðu

Póstlisti




Á döfinni

Meira...


Heimsóknir: 7137760

Fréttir


Royal Canin próf FHD í Áfangafelli 2016

20.8.2016
Stækka mynd
uþb. 20 mínútur tekur að keyra á milli skálanna
Nú styttist í Royal Caninprófið/Áfangafellsprófið margrómaða sem haldið er á heiðunum við Blöndulón.  Prófið er víðfrægt fyrir töluvert magn af rjúpu, frábært einkunnahlutfall og skemmtilega samveru.
 
Royal Caninprófið verður haldið dagana 17.-19. september (athugið laugardag, sunnudag og mánudag) 
Dómarar verða Thom Thorstensen og Frank Gunnar Bjørn frá Noregi og Guðjón Arinbjörnsson.  Kynning á Thom (sem dæmdi hér 2007) og Frank Gunnari kemur innan skamms á heimasíðu FHD
 
Dagskrá alla dagana, 17.-19. Sept er eftirfarandi:
UF/Unghundaflokkur (hundar að 2ja ára aldri) - OF/Opinn flokkur (Hundar eldri en 2ja ára) og
KF/Keppnisflokkur (hundar sem náð hafa 1. einkunn í OF)
Skráning í prófið fer fram á skrifstofu HRFÍ Síðumúla 15 eða í síma 588-5255 (opið kl. 10-15) og er síðasti skráningardagur 7.  september.   
Prófnúmer er 501607 og fulltrúi HRFÍ er Egill Bergmann
Einnig er hægt að skrá sig með því að senda tölvupóst á hrfi@hrfi.is og millifæra eða gefa upp kreditkortanúmer. 
Tiltakið ættbókarnúmer og nafn hunds sem og leiðanda í prófinu auk hvaða flokka á að skrá í.
Verð fyrir einn dag er 4800,-, tvo daga 7400,- og þrjá daga 10,100,-
Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 7. september.
Prófstjórar eru Einar Örn s: 846-2294 og Pétur Alan Guðmundsson s: 896-2696
 
Vegleg verðlaun verða veitt fyrir bestu hunda í hverjum flokk alla dagana og besti hundur prófsins í hverjum flokk fær sérstök verðlaun.
Vegna eftirleita á Auðkúluheiði fær FHD ekki Áfangafellsskálann fyrr en á hádegi á laugardag fram á mánudag (2 nætur) en FHD fær í staðinn Galtarárskálann í eina nótt frá föstudegi fram á laugardagsmorgun. Stutt er yfir í Galtarárskálann sem er hinu megin við lónið (sjá kort)
 
Auðkúluheiði verður smöluð dagana á undan en Eyvindarstaðaheiði viku síðar þannig að eitthvað getur verið af sauðfé eftir á stöku stað eins og undanfarin ár.
Mjög góð aðstaða er í Áfangaskálanum (sem við fáum á laugardeginum), stór stofa og borðstofa, fullkomið eldhús, nýendurgerðar sturtur og heitur pottur.  Galtarárskálinn (sem við fáum á föstudeginum) er nýlega uppgerður og þar eru sturtur en ekki heitur pottur.
Stefnt er að því að tveir verði saman í herbergi. Hundar mega vera í búrum inni í herbergjunum. Sameiginlegur matur verður laugardagskvöldið þar sem menn og konur koma með eigin villibráð á hlaðborð
Fullkomið eldhús er í báðum skálunum sem eru til afnota. Einhverjir koma mögulega með hjól- fellihýsi og er vægt gjald fyrir aðstöðuna í skálanum.  Fólksbílafæri er á svæðið. Aðrir gistimöguleikar eru Hveravellir, Stóra Giljá og Blönduós.
Panta verður gistingu í skálana fyrir 2. september hjá Pétri Alan Guðmundssyni  petur@thinverslun.is og þarf að staðfesta með fullri greiðslu við skráningu.  Gistigjald er kr. 12.000.- fyrir þrjár nætur og er óendurkræft en framseljanlegt til annarra.  Skráning í gistingu telst ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist.  Ath. takmarkaður fjöldi kemst í skálana og reynt verður að takmarka við tvo í herbergi sé þess kostur.
Greiða skal inn á reikning Fuglahundadeildar 0536-04-761745  kt.670309-0290 og staðfesting send á petur@thinverslun.is
Setjið í útskýringu fyrir hvern er verið að skrá.  Fyrstur kemur fyrstur fær. 
Styrktaraðilar eru Dýrheimar sem selja Royal Canin fóðrið,  Ölgerðin ofl.
Hafi menn áhuga á að sameinast í bíla bæði til að spara eldsneytiskostnað og fá félagsskap er mönnum bent á að hafa samband við prófstjóra. Skráning í prófið sjálft fer fram á skrifstofu HRFÍ á opnunartíma skrifstofu HRFÍ  (sjá nánar á www.hrfi.is) .
Þetta er viðburður sem enginn vill láta fram hjá sér fara! 
Birt með fyrirvara um óviðráðanlegar breytingar.