Prófið verður sett kl 9:00 báða dagana í Sólheimakoti.
Dómari verður Gunnar Gundersen og dómaranemi Guðni Stefánsson.
Eingöngu verða skaffaðir máfar fyrir þátttakendur í prófinu. Þeir sem ætla að nota aðra bráð verða að útvega hana sjálfir.
Prófstjóri er Lárus Eggertsson.
Muna að koma með bráð í poka merktum nafni hunds, taum, flautu og vatn fyrir hundinn. Við viljum biðja þátttakendur um að leyfa hundum ekki að losa á prófsvæði.
Við hvetjum áhugasama að koma og njóta dagsins með okkur.