Nú er orðið ljóst að sjálfkjörið verður í stjórn og varastjórn HRFÍ á aðalfundi félagsins sem haldinn verður kl. 20:00 þann 23. maí nk. á Grand Hótel Reykjavík. Þetta varð ljóst eftir að Guðríður Þorbjörg Valgeirsdóttir, stjórnarmaður HRFÍ, dró framboð sitt til baka í dag.
Í frétt á heimasíðu HRFÍ sem birtist í morgun segir eftirfarandi:
„Framboð dregið til baka
Undirrituð sendi inn til stjórnar framboð vegna væntanlegs stjórnar og varastjórnarkjörs.
Auk þess bárust framboð frá þremur félagsmönnum og fagna ég þeim áhuga sem stjórnarstarfi í Hundaræktarfélagi Íslands er sýnt.
Þar sem stjórnin í félaginu okkar verður væntanlega fullmönnuð á nýju starfsári dreg ég framboð mitt til baka.
Ég óska sitjandi og væntanlegum stjórnarmönnum alls hins besta í starfi fyrir Hundaræktarfélag Íslands.
Guðríður Þorbjörg Valgeirsdóttir“
Á aðalfundinum verður kosið um tvö sæti í aðalstjórn og eitt í varastjórn, en þrír bjóða sig fram í þessi sæti. Það eru þau Delia Kristín Howser og Guðmundur A. Guðmundsson, en þau eru bæði félagar í Retriverdeild HRFÍ, og Ólafur E. Jóhannsson, félagi í Fuglahundadeild og fyrrverandi formaður deildarinnar. Á aðalfundinum kemur síðan í ljós hverjir þessara frambjóðenda munu taka sæti í aðalstjórn og hver sest í varastjórn félagsins til næstu tveggja ára.
Fuglahundadeild óskar frambjóðendunum til hamingju með væntanlegt kjör þeirra og óskar þeim jafnframt velfarnaðar í störfum sínum fyrir Hundaræktarfélag Íslands.