Um næstu helgi verður haldin liðakeppni fuglahunda og fer hún fram
laugardaginn 5. maí. Mæting er í Sólheimakoti kl.9.30. Styrktaraðilar
liðakeppninnar eru snati.is og sportvörugerðin.is.
Keppnin fer fram með svipuðu sniði og í fyrra þ.e 3. hundar
í liði og má hafa einn til vara. Farið verður í grundvallaratriðum eftir
veiðiprófsreglum HRFÍ fyrir tegundarhóp 7. Allir aldurshópar af tegundarhópi 7
eru gjaldgengir. Keppt verður eftir keppnisflokks fyrirkomulagi með útsláttar
fyrirkomulagi þó með nokkrum undantekningum og á léttari nótunum. Eina
brottrekstrarsök hunds úr keppninni er ársargirni og önnur slík óáran.Engin
hjálpartæki við stýringu á hundi eru leyfð en persónuleg hjálpartæki leiðanda
eru í lagi. Atriði sem telja: Fuglavinnur, veiðivilji, eiginleikar til að finna
fugl, notkun á ytri aðstæðum og hraði. Annars er það bara úrskurðaraðilanna að
meta niðurstöðurnar. Ein nýbreytnin þetta árið
er að hvert lið þarf að útnefna skyttu liðsins.
Nú er um að gera að drífa sig af stað og
safna liði og melda sig í þessa „ keppni“. Móttaka skráninga: Svafar
S:8609727, Þorsteinn s:8930228 og Bragi s: 8562024